Dánarkveðja
DÁNARKVEÐJA. Í minningu um Guðrúnu Stefánsdóttur að Haga í Þjórsárdal, samið að ósk móður hinnar látnu. Þetta tónverk er í þrem þáttum: I Andlátsbæn, II Sorgargöngulag og III Móðurkveðja. Samið milli jóla og nýárs 1943, í hljóðfærabúnaði, píanó eða orgel. Eru forsendur að þessu tónverki athyglisverðar á ýmsan hátt og mun ég skjalfesta þær annars staðar. Samt skal þess getið hér að móðir hinnar látnu, J. Margréti Eiríksdóttur, fórust svo höfðínglega öll afskipti í þessu sambandi að slíkt mun vera dæmalaust og á ég því afar hugljúfar minningar í sambandi við þetta tónverk og allt því viðkomandi. Meðal annars lét Margrét prenta það á sinn kostnað í 100 tölusettum eintökum.
(úr athugasemdum BG um uppruna tónverka sinna)