Skip to Content

Björgvin Guðmundssson tónskáld

Björgvin Guðmundssson tónskáld

Björgvin var um tíma organisti við Akureyrarkirkju meðan Jakob Tryggvason organisti var við framhaldsnám í Englandi. Þetta var skömmu eftir að herra Pétur Sigurgeirsson varð sóknarprestur á Akureyri 1947. Þá var það einhverju sinni eftir messugjörð í kirkjunni, að presturinn ungi var boðinn í kaffi til Björgvins og Hólmfríðar konu hans. Heimili þeirra var skammt neðan við kirkjuna, í næsta húsi norðan við Sigurhæðir Matthíasar (Hafnarstræti 83). Séra Pétur hélt því á hempunni með sér og fékk að hengja hana upp á meðan hann staldraði við. En nú vildi svo til að á meðan á heimsókninni stóð, var presturinn kallaður til viðtals og vék hann sér því frá um stund. Þá notaði Björgvin tækifærið og brá sér í hempuna og setti upp pípuhattinn. Jón Sigurgeirsson lögregluþjónn var þarna nærstaddur með myndavél og því bað Björgvin hann blessaðan að smella nú af mynd. Hann leiddi Hólmfríði konu sína út bakdyramegin og þar tók Jón þessa sögulega og gamansömu mynd. Augljóst er að Hólmfríður á næsta bágt með að skella ekki upp úr en Björgvin lifir sig býsna vel inn í hlutverkið.

(textinn tekinn uppúr tímaritinu Heima er bezt) 



Drupal vefsíða: Emstrur