Skip to Content

Akureyrarkirkja klukkuspil

Stef sem tákna mannsævina

Stundaklukkan sem blasir við Akureyringum er sænsk, en hana gaf Kristján Halldórsson úrsmíðameistari árið 1948 í minningu konu sinnar, Friðbjargar Vigfúsdóttur. Gangverkið var barn þess tíma, drifið lóði sem seig ákveðna vegalengd og var þá dregið upp af rafmótor. Fjórar klukkur fylgdu klukkunni og léku fjögurra nótna stef sem Björgvin Guðmundsson tónskáld samdi, en stefin tákna mannsævina. Á fyrsta fjórðungi slær hún fjórar nótur, sem tákna uppvöxtinn, á hálfa tímanum slær hún átta nótur, sem tákna ungþroskaskeið, á þriðja stundarfjórðungi eru slegnar tólf nótur, sem tákna manndómsárin, og á heila tímanum kemur allt lagið, sextán nótur sem tákna hnignun eða elli. 


Drupal vefsíða: Emstrur