Skip to Content

Íslendigadagurinn í Kanada

Íslendingadagurinn er haldinn hátíðlegur í Kanada og yfirleitt 2. ágúst ár hvert. Á þeim tíma sem Björgvin bjó í Kanada var mikil áhersla lögð á kórsöng og jafnan stofnaður sérstakur kór sem æfði söng af þessu tilefni. Eftir því sem Björgvin sýndi meiri tilburði í þá átt að semja tónlist, og lög voru flutt eftir hann í ríkari mæli, varð hann eftirsóttur sem söngstjóri og því oft leitað til hans í sambandi við Íslendingadaginn. Hann var líka „ólmur eftir söngstjórn“ eins og hann orðaði það sjálfur og 1918 var hann beðinn um að æfa kór fyrir Íslendingadaginn í Wynyard. Hátíðn tókst vel og fékk söngflokkurinn og stjórnandi kórsins góða dóma. Þremur vikum eftir hátíðina var Björgvini haldið kaffisamsæti í Wynyard þar sem Ísleningadagskórinn heiðraði hann og þakkaði samstarfið. Verður nú vitnað í Minningar, æviminningar Björgvins:

„Þar var mér fyrirbúið hið veglegasta samsæti og gefinn taktstokkur úr ebenvið, silfurbúinn með áletrun, sem minnigargjöf frá söngflokknum. Þá skemmtum við okkur eitthvað fram eftir deginum, og m.a. söng kórinn nokkur lög, en lélegur söngstjóri mun ég hafa verið þá, því að ég var allklökkur. Var þetta fyrsta virðingamerki, sem mér hlotnaðist, og kom það svo mjög við tilfinningar mínar, að ég var marga daga að komast yfir það og með taktstokkinn í höndunum svaf ég fyrstu næturnar. Og m.a. vegna þessa atburðar tel ég árið 1918 eitt hið merkasta í mínu lífi.“

Hvort myndin sem hér fylgir er tekin af þessu tilefni skal ósagt látið, hitt er víst að Björgvin situr fyrir miðri mynd, með taktsotkkinn (tónsprotann) í hendinni.



Drupal vefsíða: Emstrur