Diddú og drengirnir á ferð í Kanada
Fyrir stuttu var hópnum „Diddú og drengirnir“ boðið að koma til
Kanda og halda tónleika á vegum háskólans i Manitoba. Á efnisskránni voru lög
og ljóð eftir vestur- íslensk skáld og íslensk/ vestur-íslensk tónskáld sem
störfuðu um tíma í vesturheimi, þar á meðal voru nokkur sönglög eftir Björgvin
Guðmundsson. Tónleikarnir fóru fram í FIRST LUTHERAN CHURCH, WINNIPEG.
Svo skemmtilega vill til að í þessari sömu kirkju árið 1926, flutti
Björgvin helgikantötu sína TIL KOMI ÞITT RÍKI / Ad veniat regnum tuum í fyrsta
sinn og mun sá flutningur hafa vakið svo mikla og góða athygli á honum sem
tónlistarmanni að vestur-íslendingar hófu söfnun og styrktu Björgvin til náms í
The Royal College of Music í London.
Í tilefni að þessari menningarferð Diddúar og drengjanna hefur verið
gefinn út geisladiskur og í bók sem fylgir er fróðleikur um íslensk ljóða og
tónskáld, lagasmiði og tónlistarlíf meðal íslendinga sem fluttu til
Vesturheims.
Diddú og
drengirnir eru:
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran Sigurður Ingvi Snorrason
& Kjartan Óskarsson klarinett
Emil
Friðfinnsson & Þorkell Jóelsson horn Brjánn Ingason & Björn Árnason fagott
Nánar
um efnisskrána og tónskáldin hér:
http://umanitoba.ca/faculties/arts/departments/icelandic/media/icelandicsongsbooklet.pdf