Skip to Content

Þú kemur sem fyr

Ár samið: 
1937
Texti / Ljóð: 

 

Þú kemur sem fyr með söng og sól,

og síglaða létta róminn.

Nú vaknar það líf, sem frostið fól

með fagnandi sigurhljóminn.

Nú breiðist þín hönd um heimsins ból,

sá himneski friðarljóminn.

 

Nú lifnar sú von og draumadís,

sem dó burt í vetrar kvíða.

Og ljósvængjuð bæn frá brjósti rís

með blænum þeir geislar líða.

Í sólþey til himins er vegur vís,

þú vorsins og sumar blíða.

 

 

Hvar í riti: 
ÁTTATÍU OG ÁTTA KÓRLÖG (í alþýðlegum búnaði) útsett fyirir samkynja og ósamkynja raddir án undirleiks
Höfundur texta: 
Kjartan Ólafsson


Drupal vefsíða: Emstrur