Skip to Content

Eitthundrað og tuttugu ára fæðingarafmæli Björgvins Guðmundssonar.

Eitthundrað og tuttugu ára fæðingarafmæli Björgvins Guðmundssonar. Þann 10. apríl n.k. verður þess minnst að um þessar mundir eru liðin 120 ár frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar tónskálds. Af því tilefni hafa nokkrir velunnarar Björgvins ákveðið að efna til hátíðardagskrár, sem haldin verður í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 10. apríl kl. 16.

Flutt verður kantatan Tilkomi þitt ríki undir stjórn Roars Kvam og Leikfélag Akureyrar sýnir valda þætti úr söngleiknum Skrúðsbóndanum eftir Björgvin undir leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Auk þess verða sungin einsöngslög eftir Björgvin og sýnd kvikmynd um söngferð Kantötukórs Akureyrar til Norðurlandanna sem farin var árið 1951.



Drupal vefsíða: Emstrur