Skip to Content

Taktstokkur - tónsproti

Taktsokkur (tónsproti) sem sem sagt er frá í æviminningum Björgvins.

Á honum stendur:

Björgvin Guðmundsson Frá Söngflokk 2. Ágúst 1918

Wynyard, Sasc

Björgvini var haldið kaffisamsæti í Wynyard af þessu tilefni þar sem Ísleningadagskórinn heiðraði hann og þakkaði samstarfið. Verður nú vitnað í Minningar, æviminningar Björgvins:

„Þar var mér fyrirbúið hið veglegasta samsæti og gefinn taktstokkur úr ebenvið, silfurbúinn með áletrun, sem minnigargjöf frá söngflokknum. Þá skemmtum við okkur eitthvað fram eftir deginum, og m.a. söng kórinn nokkur lög, en lélegur söngstjóri mun ég hafa verið þá, því að ég var allklökkur. Var þetta fyrsta virðingamerki, sem mér hlotnaðist, og kom það svo mjög við tilfinningar mínar, að ég var marga daga að komast yfir það og með taktstokkinn í höndunum svaf ég fyrstu næturnar. Og m.a. vegna þessa atburðar tel ég árið 1918 eitt hið merkasta í mínu lífi.“

 



Drupal vefsíða: Emstrur