Blunda, barnið góða
Texti / Ljóð:
Blunda, barnið góða,
ég bæri vöggu hljóða,
svo þig dreymi dátt og blítt,
dilla ég þér hægt og þýtt.
Blunda barnið góða.
Grein á víntré vænu,
þú vex í skrúði grænu,
út í heiminn brátt þig ber,
burt frá móður hönd þú fer.
Grein á víntré vænu.
Gleym ei æsku inni
og eigi móður þinni,
mundu öll þín ævispor,
elsku barn, þitt „FAÐIR VOR.“
Hvar í riti:
SJÖTÍU OG SJÖ SÖNGVAR handa barna- og kvennakórum
Höfundur texta:
Chr. Richardt - Bjarni Jónsson þýddi
Höfundur - annar:
Carl Mortensen