Björgvin sjálfur
„ … þegar ég að lokum fram ber þá hjartans ósk að á hundrað ára tónbókmennta afmæli okkar sem gjarnan mætti teljast árið 1974, vegna þjóðsöngsins, verði ekki minni tónbókmenntaþjóð en við nú erum bókmenntaþjóð. En öruggasta að ég ekki segi eina leiðin til þess er að þjóðin sjálf fylgist og þroskist með sinni eigin tónlist. Að stuðla að því á að vera æðsta markmið allrar hljómrænna starfsemi í landinu. Góða nótt.“
Björgvin fór nokkrum sinnum til Reykjavíkur og las inn erindi hjá Ríkisútvarpinu. Hér er lítið brot, það eina sem varðveist hefur. Hér má þó greina þann mikla áhuga sem Björgvin hafði á því að Íslenska þjóðin væri meðvitaðri um tónlistarsögu sína á sama hátt og hún er um bókmenntasöguna.
Upptakan er líklega frá 25. apríl 1937.